Project Description

Kiddahvítt

Kiddahvítt var lagaður upprunalega fyrir Kidda Sig. málara. Kiddi vildi ekki Málarahvítt þannig að Rúnar litunarmeistari bjó til lit sérstaklega fyrir Kidda. Liturinn er hér um bil hálfur Málarhvítur. Hann er eilítið gulari en hvítt og er því frekar hlýrri en hvítir litir sem eru frekar í áttina að gráum.

„Kiddahvítt – var ekki vinsæll í upphafi en nú í dag er hann einn af okkar mest seldu hvítu litum.

– Hönnunarteymi Slippfélagsins 

Smelltu á myndirnar til að skoða þær stærri.

Litapalletta myndarinnar

Kiddahvítt
á veggjum

Ektahvítt
á lofti

Kiddahvítt er litur sem fellur vel með Ektahvítum á loftið.

Smelltu á myndina til að skoða vörur fyrir undirbúning og málun nánar.

Gott að vita þegar málað er innanhús

– Loft eru alltaf máluð á undan veggjum, svo ekki fari málning á nýmálaða veggina.
– Loft eru oftast höfð ljósari en veggir. Þannig skynjum við herbergi stærri og rýmri.
– Aukin gljái gerir misfellur á yfirborði meira áberandi. Mött málning felur misfellur betur en gljáandi.
– Ekki er ráðlagt að mála loft með hærra gljástig en 5. Á veggi í herbergjum og stofu er hægt að nota meira t.d. gljástig 10-20.
– Í eldhúsi og baðherbergi er mælt með enn hærra gljástigi, t.d. Akrýl 35 eða 85 málningu. Hún er með sveppa- og mygluvörn.
– Augað skynjar liti mismunandi eftir gljáa, og mattari málning gefur ljósari tón.
– Litir virðast sterkari á stórum flötum.
– Lýsing hefur áhrif á liti.
– Litaprufur geta verið afar hjálplegar við val á litum. Hægt að fá litlar handhægar litaprufur í öllum litum og prófa hinar og þessar litasamsetningar.
– Ekki er allt sem sýnist í litakortum eða tölvuskjám. Fersk litaprufa af litnum gefur raunverulegustu myndina af litnum.
– Byrjið ekki á nýrri málningardós á miðjum vegg.
– Rétt hitastig (15-20 °C) og rakastig (40-70 %) skipta máli hvernig til tekst.
– Lesið vandlega á dósarmiða áður en vinnan hefst.

Smelltu á myndina til að sjá
vinsælustu litina okkar.

Augnablik! Veit samfélagið af þessu? Má bjóða þér að deila ...