VIÐAR vörulínan

Viðarvörn er m.a. notuð til að ná annars fram lit, gljáa og útliti á við. Hægt er að setja á viðaryfirborð, glær, hálfþekjandi og þekjandi efni. Allt eftir smekk hvers og eins. Viðarvörn verndar yfirborðið gegn t.d. óhreinindum, gráma, fúa, vatni og veðrun. Lykilatriði í vörn viðarvarnar er tvíþætt, þ.e.a.s. að hindra að sólarljós komist að viðaryfirborðinu og halda rakastigi viðarins lágu.

Slippfélagið framleiðir vörulínuna VIÐAR sem er viðarvörn ætluð á allt tréverk utandyra.

GOTT AÐ VITA

  1. Hægt er að blanda hvaða lit sem er. Þú einfaldlega velur litinn, tegund VIÐAR viðarvarnar og við blöndum.

  2. Sölumenn Slippfélagsins veita faglegar ráðleggingar til verksins. Kíktu til okkar og við svörum öllum þeim spurning sem á þér brenna.

  3. Í viðarolíum þá er meginreglan 1 líter á 7-8 fm2 miðað við sléttan flöt. Viður sem hefur ekki fengið viðarvörn lengi þarf allt að tvöfalt meira magn.

UNDIRVINNA

Góð undirvinna er jafnan forsenda góðs árangurs. Nýjan við á ekki að þurfa undirvinna en hann á að jafnaði að vera laus við öll óhreinindi. Eftirfarandi aðferð á því fyrir við sem þarfnast viðhalds.

  1. Viðarkvoðu úr kvistum skal skrapa burt og þrífa með terpentínu.

  2. Berið VIÐAR grámahreinsi á viðinn og notið skrúbb til að fjarlægja sveppavöxt, myglu og þess háttar. Látið vinna á fletinum í u.þ.b. 15 mínútur. Í mjög slæmum tilfellum má láta það vinna á fletinum í 60 mínútur. Notið skrúbb til að nudda efninu vel inn í flötinn. Skolið síðan vel með vatni.

  3. Skafið og fjarlægið allan gráma og lausa málningu. Ef um er að ræða kalkaða gamla málningu skal þvo yfirborðið með málningarhreinsi og/eða nota sandpappír til að fjarlægja kalkað yfirborð. Ef viðaryfirborð er mjög slétt og gljáandi, þá skal matta yfirborðið með sandpappír. Fjarlægið allt ryk sem kemur við slípun.

  4. Nauðsynlegt er að skola í burt allar sápuleyfar með hreinu vatni.

  5. Þegar viðurinn er orðinn þurr, þ.e.a.s. með rakastig 18%, er hægt að hefja málun.

SÓLPALLAR OG VIÐARHÚSGÖGN

VIÐAR pallaolía er ætluð til notkunar á við utanhúss og hentar sérlega vel á sólpalla og viðarhúsgögn, til þess að koma í veg fyrir vatnsupptöku. Olían inniheldur efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun. VIÐAR pallaolía frískar útlit viðarins, kemur í veg fyrir ofþornun og sprungumyndun. VIÐAR pallaolía er ætluð til notkunar á við, furu, tekk, eik, o.fl.

Eftir að undirvinnu er lokið og viður hefur náð 18% rakastigi má bera VIÐAR pallaolíu á viðinn þar til hann er fullmettaður. Í flestum tilfellum duga ein til tvær umferðir. Fleti sem mikið mæðir á skal meðhöndla á hverju ári.

MIKILVÆGT AÐ VITA

  1. Pallaolía er ætlað að metta viðinn en ekki mynda filmu. Þurrkið af afgangs efni.

  2. Sólarvörn felst í litarefnum sem notuð eru til að lita pallaolíuna. Sterkari litur gefur sterkari sólarvörn.

  3. Við málun þarf að hræra reglulega, þar sem pallaolía er þunnfljótandi og litur getur fallið niður á botn. Mikilvægt er að litur sé jafndreifður um dósina við málun.

  4. Viðar pallaolía inniheldur þornandi olíur og því er hætta á sjálfsíkveikju. Úrgangi, notuðum tuskum o.þ.h. skal farga tryggilega!

SUMARHÚSIÐ OG SKJÓLVEGGIR

Viðarvörn er m.a. notuð til að ná annars fram lit, gljáa og útliti á við.

Þekjandi málningarkerfi

  1. Metta skal alla fleti með VIÐAR grunnvörn. Mjög mikilvægt er að metta vel endatré og samskeyti.

  2. Grunnið með VIÐAR grunnmálningu meðal annars til þess að auka filmuþykkt og fá gott yfirborð fyrir yfirmálninguna.

  3. Málið tvær til þrjár umferðir með VIÐAR þekjandi.

Svona málningarkerfi sem er uppbyggt af gæða grunnvörn, grunnmálningu og yfirmálningu gefur lengstu endingu.

 Hálfþekjandi málningarkerfi

Ef óskað er eftir þannig áferð litur og/eða mynstur viðarins haldist er hægt að nota hálfþekjandi málningarkerfi:

  1. Metta skal alla fleti með VIÐAR grunnvörn. Mjög mikilvægt er að metta vel endatré og samskeyti.

  2. Málið 2 umferðir með lituðum VIÐAR hálfþekjandi. Málið fjöl fyrir fjöl til að fá jafna og fallega áferð.

MIKILVÆGT AÐ VITA

  1. Hafi fyrri umferð í hálfþekjandi gefið þann lit sem óskað er, skal sú seinni vera glær því liturinn dökknar við hverja umferð. Ef örlítið vantar upp á litinn eftir fyrri umferð er hægt að þynna litinn með glærum Viðar hálfþekjandi. Þess ber þó að geta að liturinn felur í sér vörn gegn sólarljósi.

  2. Ef of lítill litur er notaður getur grámi byrjað undir filmunni og flögnun átt sér stað. Meiri filmuþykkt og litur gefur lengri endingu.

  3. Sé um að ræða mjög illa farinn við er ráðlegt að skipta yfir í VIÐAR þekjandi.

  4. Litur dökknar við hverja umferð sem máluð er í hálfþekjandi kerfi. Ef vilji er til þess að lýsa upp lit á gömlu yfirborði getur borgað sig að mála eina umferð með gulri Viðari grunnmálningu og mála síðan yfir með þeim lit sem óskað er.

VIÐAR grámahreinsir

Viðar grámahreinsir frískar upp viðarfleti, fjarlægir viðargráma og sveppagróður.

VIÐAR grunnmálning

VIÐAR grunnmálning er ætluð til grunnunar á gluggum, viðarklæðningum þakköntum o.þ.h. utanhúss. Áður en kíttað er í gluggaföls skal grunna með Viðari grunnmálningu.

VIÐAR grunnvörn

VIÐAR grunnvörn er öflug grunnviðarvörn sem inniheldur sérhannaðar olíur sem ná að smjúga langt inn í viðinn og verja hann gegn upptöku á raka. VIÐAR grunnvörn inniheldur einnig efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun.

VIÐAR pallaolía

VIÐAR pallaolía er viðarvörn sem er ætluð til að koma í veg fyrir vatnsupptöku, frískar útlit viðarins, kemur í veg fyrir ofþornun og sprungumyndun.

VIÐAR hálfþekjandi

VIÐAR hálfþekjandi er viðarvörn sem er ætlað til að verja og lita glugga, viðarklæðningar, þakkanta, girðingar o.þ.h. utanhúss.

VIÐAR þekjandi

VIÐAR þekjandi er viðarvörn sem er létt í vinnslu, flýtur vel og myndar þekjandi filmu án þess að viðarmynstrið tapist.

VIÐAR trévörn

VIÐAR trévörn er öflug grunnviðarvörn sem inniheldur sérhannaðar þornandi olíur sem ná að smjúga langt inn í viðinn og verja hann gegn upptöku á raka. Ætluð á ferskan við.

Grámahreinsir

Grunnmálning

Pallaolía

Grunnvörn

Þekjandi viðarvörn

Hálfþekjandi viðarvörn

Augnablik! Veit samfélagið af þessu? Má bjóða þér að deila ...