Your alt text

Vistvænni Viðar pallaolía

Vörunúmer: 231300010100

VIÐAR pallaolía er ætluð á ómálaðan þrýstivarinn við, t.d. furu og eik. Olían hentar sérlega vel á sólpalla. VIÐAR pallaolía á að metta viðinn en ekki mynda filmu.

VIÐAR pallaolía inniheldur vatnsþynnta alkýðolíu sem frískar upp á við, verndar gegn vatnsupptöku, ofþornun, sprungu- og sveppa­myndun. Lituð pallaolía ver viðinn vel gegn niðurbroti af völdum sólarljóss. Ekki er ráðlegt að nota eingöngu glæra pallaolíu.

Stærð : 1 ltr. – 4 ltr. – 10 ltr.