Your alt text

Vistvænni Viðar grunnmálning

Vörunúmer: 232000110100

VIÐAR GRUNNMÁLNING er ætluð til grunnunar á gluggum, viðarklæðningum þakköntum o.þ.h. utanhúss.

VIÐAR GRUNNMÁLNING er ætluð til notkunar utanhúss, á við sem á að yfirmála með VIÐARI ÞEKJANDI. Grunnmálningin er vatnsþynnanleg, smýgur vel inn í viðinn og tryggir góða viðloðun. Málningin er vatnsfráhrindandi en jafnframt opin gagnvart vatnsgufu. Viðar grunnmálning tefur eða hindrar blæðingu viðarkvoðu sem og gróður- og sveppamyndun. VIÐAR GRUNNMÁLNING er einfaldur í notkun og minnkar losun á lífrænum leysum samanborið við klassíska viðarvörn.