Your alt text

Akrýl 7

Vörunúmer: 58071000

Akrýl 7 er vatnsþynnanlegt akrýlplastlakk með frábæra þekju- og viðloðunareiginleika. Efnið er nær lyktarlaust, með ágætis efnaþol, mjög gott veðrunarþol og auk þess hefur það góða þvottheldni. Inniheldur sérstök virk efni gegn myglu- og sveppavexti. Lit- og gljáheldni lakksins er einstaklega góð og það gulnar ekki. Efnið er sérþróað til notkunar með pensli eða rúllu og hefur því gott flot. Akrýl 7 er verðugur arftaki einþátta alkýð- eða akrýlleysiefnalakka.

Tæknilegar upplýsingar
Litir: 7 allir litir.
Gljástig: 7
Pakkningar: 1, 4 og 10 lítrar
Efnisnotkun: 10 m2/l
Eðlisþyngd: 1,27 kg/l
Þurrefni: 40 % (rúmmál)
Þynnir Vatn
Áhaldahreinsir Vatn
Þurrktími 2 klst
Yfirmálun Lágmark:4 klst
Hámark: Ekkert