Your alt text

Akrýl 25/85

Vörunúmer: 58071000-1

Akrýl 25/85 er vatnsþynnanlegt akrýlplastlakk með frábæra þekju- og viðloðunareiginleika. Efnið er nær lyktarlaust, með ágætis efnaþol, mjög gott veðrunarþol og auk þess hefur það góða þvottheldni. Inniheldur sérstök virk efni gegn myglu- og sveppavexti. Lit- og gljáheldni lakksins er einstaklega góð og það gulnar ekki. Efnið er sérþróað til notkunar með pensli eða rúllu og hefur því gott flot. Akrýl 25/85 er verðugur arftaki einþátta alkýð- eða akrýlleysiefnalakka.

Litir: 25 allir litir. 85 ljósir litir
Gljástig: 25/85
Pakkningar: 1, 4 og 10 lítrar
Efnisnotkun: 10 m2/l
Eðlisþyngd: 1,27 kg/l
Þurrefni: 40 % (rúmmál)
Þynnir: Vatn
Áhaldahreinsir: Vatn
Þurrktími: 2 klst
Yfirmálun Lágmark: 4 klst
Hámark: Ekkert

 

 

 

Svanurinn