decorative image

Arkitektahvítt

Arkitektahvítt

Arkitektahvítt er litur sem er búinn að vera lengi til hjá Slippfélaginu. Arkitektar báðu um þennan litatón og var hann því blandaður fyrir þá. Arkitektahvítt er mjög vinsæll litur.

Color image
Color image
Color image
Color image
Color image
Color image
Color image
Color image
decorative image

Gott að vita þegar málað er innanhús

  • Loft eru alltaf máluð á undan veggjum, svo ekki fari málning á nýmálaða veggina.
  • Loft eru oftast höfð ljósari en veggir. Þannig skynjum við herbergi stærri og rýmri.
  • Aukin gljái gerir misfellur á yfirborði meira áberandi. Mött málning felur misfellur betur en gljáandi.
  • Ekki er ráðlagt að mála loft með hærra gljástig en 5. Á veggi í herbergjum og stofu er hægt að nota meira t.d. gljástig 10-20.
  • Í eldhúsi og baðherbergi er mælt með enn hærra gljástigi, t.d. Akrýl 25 eða 85 málningu. Hún er með sveppa- og mygluvörn.
  • Augað skynjar liti mismunandi eftir gljáa, og mattari málning gefur ljósari tón.
  • Litir virðast sterkari á stórum flötum.
  • Lýsing hefur áhrif á liti.
  • Litaprufur geta verið afar hjálplegar við val á litum. Hægt að fá litlar handhægar litaprufur í öllum litum og prófa hinar og þessar litasamsetningar.
  • Ekki er allt sem sýnist í litakortum eða tölvuskjám. Fersk litaprufa af litnum gefur raunverulegustu myndina af litnum.
  • Byrjið ekki á nýrri málningardós á miðjum vegg.
  • Rétt hitastig (15-20 °C) og rakastig (40-70 %) skipta máli hvernig til tekst.
  • Lesið vandlega á dósarmiða áður en vinnan hefst.