Þegar nýtt steinhús er málað er mikilvægt að allir fletir séu lausir við þau efni sem hindrað geta viðloðun. Flöturinn skal vera hreinn, þurr, fastur viðkomu og a.m.k. mánaðar gamall. Á flekamótum og forsteyptum einingum eru t.d. olíuefni og sementshúð sem fjarlægja verður með háþrýsti þvotti, 150-300 bör. Veðrun til langs tíma getur gert sama gagn. Láréttir fletir eins og þakkantar, vatnsbretti undir gluggum og steypt svalahandrið þurfa sérstaka meðferð. Við nýmálun á sléttum steyptum flötum er best að tryggja viðloðun eftir sílanböðun með BRYNJU, sem er terpentínuþynnanleg akrýlmálning, eða GRUNNTEXI. Sama gildir um viðgerða fleti á eldri húsum.
Við endurmálun á steinveggjum þar sem einhver flögnun hefur orðið, er nauðsynlegt að komast fyrir orsakirnar, svo ekki sæki allt í sama horfið. Við málun á svalagólfum þarf fyrst að fjarlægja sementshúð með háþrýsti þvotti, 150-300 bör, eða vélslípun. Þegar gólfið er orðið vel þurrt er það grunnað með tveggja þátta grunni og málað með tveggja þátta málningu yfir. Best er að hafa samband við sérfræðing frá Slippfélaginu áður en hafist er handa.
* Nákvæmari upplýsingar um efnin er að finna á tækniblöðum.
MÓNÓSÍLAN 40 er notað á nýja og/eða ómálaða steinsteypu og múrhúð utanhúss,
til þess að gera flötinn vatnsfælinn.
Mónósílan 40 má einnig nota á hvers konar náttúrustein, múrstein o.fl. Tilgangslaust er að sílanbera áður málaða fleti.
Grunnur, múr- og steinsteypumálning
BRYNJA er ætluð á steinsteypu og múr utanhúss. Hún er mött terpentínuþynnanleg akrýlmálning. Brynja er mjög opin og kemur því ekki í veg fyrir eðlilega rakaútgufun. Málningin vætir mjög vel og hefur því mjög góða viðloðun við múr og steypu. Þar sem upplausnarefnið er terpentína má mála við mun lægra hitastig en með vatnsþynnanlegum málningum.
GRUNNTEX er vatnsþynnanlegur, akrýlbundinn bindigrunnur, sem smýgur vel, bindur laust yfirborð og styrkir flötinn. Ætlaður á steinsteypu og múrhúð utanhúss.
Vitretex þykkmálning er ætluð á steinsteypu og múrhúð utanhúss bæði við ný- og endurmálun. Málningin er vatnsþétt og hentar á vatnsbretti og þess háttar. Mælt er með vatnsfælu á ómálaða fleti áður en málað er.
VITRETEX er mött og vatnsþynnanleg akrýlmálning með frábært alkaíl-, vatns- og veðrunarþol og hentar því íslenskum aðstæðum sérlega vel. VITRETEX inniheldur hágæða 100% hreint akrýlbindiefni sem gefur málningunni afburða mikla mótstöðu gegn gulnun og krítun.
ULTRATEX er ætlað á múr og steinsteypu úti. ULTRATEX er vatnsþynnanleg, akrýlbundin plastmálning, sem myndar veðrunarþolna filmu allt niður að 0°C (getur þornað við allt að 0°C). ULTRATEX hleypir auðveldlega gegnum sig raka og hefur til að bera teygjueiginleika sem hjálpar til að brúa fínar sprungur.