VIÐAR grámahreinsir

Viðar grámahreinsir frískar upp viðarfleti, fjarlægir viðargráma og sveppagróður.

Stærð : 1 ltr. – 2,5 ltr. – 10 ltr.

SKU: 24140000 Categories: , Tags: ,

Description

VIÐAR Grámahreinsir er vatnsþynnt hreinsiefni ætlað á óhreina og gráa viðarfleti. Viðar Grámahreinsir brotnar auðveldlega niður í náttúrunni, hann fjarlægir ekki málningu eða lökk. Berið Viðar Grámahreinsi á flötinn með pensli, klút eða sprautu og látið standa í 15-30 mínútur. Á mjög mislitaða og gráa fleti má Viðar Grámahreinsir standa á fletinum í 1-2 klst. Burstið þá viðinn með stífum bursta og skolið með köldu vatni. Þegar viðurinn hefur þornað (rakastig undir 18%) grunnið þá með Viðar Trévörn.

Title