Viðskiptaskilmálar vefverslunar Slippfélagsins

Meginupplýsingar

Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Slippfélagsins til neytenda.
Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.
Skilmálinn og aðrar upplýsingar á Slippfelagid.is eru einungis fáanlegar á íslensku.
Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um neytendakaup,lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Skilgreining:

Seljandi er Slippfélagið ehf, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík, kennitala: 631209-1650, virðisaukaskattsnúmer 103624. Slippfélagið ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.slippfelagid.is

Skilaréttur

Kaupandi getur skilað vöru keyptri af seljanda innan 30 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu.   Ábyrgðarskírteini, kaupnóta eða gjafamiði skilyrði fyrir vöruskilum. Ef valið er að fá vöru endurgreidda er skilyrið að kaupnóta sé fyrir hendi eða að kaup séu skráð á kennitölu, eingöngu er gefin inneign gegn gjafamiða. Við skil á vöru þarf hún að sjálfsögðu að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum,

Pöntun

Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í skrefi 3.
Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef að kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einng ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.

Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á.

Upplýsingar

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana.

Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef að varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð

Verð eru á stöðugum breytingum hjá seljanda vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu..
Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega(skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Netverð gildir aðeins þegar vara er keypt í Vefverslun. Almennt verð sem gildir í verslunum Slippfélagsins  er birt yfir ofan netverðið.

Greiðsla

Hægt er að greiða með debetkorti eða kreditkorti í vefversluninni.

Afhending og seinkun

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands.

Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.

Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda.

Sendingarkostnaður er greiddur af viðskiptavinum samkvæmt verðskrá Íslandspósts.

Þegar þú verslar í vefverslun getur þú valið á milli þess að fá sendinguna senda heim til þín, á næsta pósthús eða sækja í verslun. Hægt er að sækja pöntun í verslun okkar í Borgartúni og Akureyri.

Yfirferð á vörum

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Réttur við galla eða vöntun

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Réttur neytenda (með neytenda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003.
Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Persónuvernd

Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu.
Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang.

Eignarréttur

Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda.

Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda tölvupóst með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin á slippfelagid@slippfelagid.is til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun Slippfélagsins til að fá svör eða einfaldlega hringt í aðalsíma Slippfélagsins þar sem honum verður vísað á réttan stað.