FJÓRÐI ÞÁTTUR SKREYTUM HÚS

Fjórði þátturinn af Skreytum Hús er kominn út en hægt er að horfa á hann hér fyrir ofan, inni á www.visir.is og á Stöð 2 Maraþon.

Í þessum þætti tekur Soffía í gegn tvö barnaherbergi, annað hjá þriggja ára strák og hitt hjá eins árs gamalli stelpu. Soffía heimsækir Öldu Dröfn Guðbjörnsdóttur en hún og fjölskyldan fluttu inn fyrr á þessu ári. Þegar þau fluttu inn þá máluðu þau en komust ekki lengra en henni langaði að skapa ævintýraheim og finna eitthvað til að skreyta veggina með sem myndi eldast vel með börnunum. Alda Dröfn endaði á því að mála fríhendis á veggina hjá krökkunum. Inni hjá dóttur sinni málaði hún regnbogann en henni var ráðlagt að hafa hann ekki of reglulegan en það kæmi betur út ef það myndi sjást að hann væri málaður með pensli. Í herbergi sonarins málaði hún síðan fallegan ævintýraskóg.

Hér er hægt er að lesa meira um framkvæmdina á vefsíðu Soffíu Daggar

Hér er einnig er hægt að skoða frétt Vísis um þáttinn.

 Í herbergi dóttur sinnar málaði Alda regnboga á vegginn en litirnir í honum eru allir frá Slippfélaginu og heita frá efsta lit; HAUSTRÓS, KÆR, TVT J310, HUGGULEGUR og DÁSAMLEGUR. Þessi regnborgi gerir mikið fyrir rýmið, mikil innspýting af persónuleika.  Liturinn sem var á veggnum fyrir er sambærilegur litnum KÆR eða LEKKER frá Slippfélaginu.  Myndir: Soffía Dögg, Skreytumhus.is
Í herbergið hjá syni sínum málaði Alda tré á veggina en litirnir á trjánum eru frá Slippfélaginu og frá vinstri eru þeir SVAKALEGUR, ÁLFAGULL, BERGMÁL, WOODY ALLEN og KRYDD en útkoman er ævintýraleg og kemur ótrúlega vel út í þessu fallega herbergi. Liturinn á veggnum er sambærilegur litnum NÁTTÚRULEGUR eða HUGGULEGUR frá Slippfélaginu. Myndir: Soffía Dögg, Skreytumhus.is 
Hurðar, skápar og gólflistar í báðum herbergjum voru svo lakkaðir með Helmi 30 og Kópal Magna grunn frá Slippfélaginu. Myndir: Soffía Dögg, Skreytumhus.is 

LITIRNIR SEM KOMA FRAM

SVAKALEGUR

ÁLFAGULL

BERGMÁL

WOODY ALLEN

KRYDD

HAUSTRÓS

KÆR

HUGGULEGUR

DÁSAMLEGUR

NÁTTÚRULEGUR

Fleiri þættir

NÝIR FALLEGIR LITIR

YLJA

YLJA

Ljósari útgáfan af litnum Ró sem er dekkri, fagur, hlýlegur grátóna litur. Ylja er litur í allt rýmið, heil herbergi eða önnur rými þar sem þú sækist eftir góðu faðmlagi frá rýminu og fallegri hlýju.

Soffía Dögg tók í gegn sýningaríbúð á Ásbrú þar sem hún notaði litinn YLJA á alrýmið og baðherbergið. “Ég get ekki mælt meira með þessum fallega lit en YLJA er einn af nýju litunum mínum sem ég gerði og hann er alveg dásemd, svo hlýr og fallegur – mjúkur og umlykjandi,” segir Soffía Dögg.
Hægt er að sjá fleiri myndir á vefsíðu Soffíar HÉR!

Dekkri útgáfan af litnum Ylju. Tónninn er afar hlýr og milli dökkur. Grátóna litur sem fer vel í öll rými ef þú leitar eftir kyrrð og nokkurri dýpt í rýmið án þess að vera of yfirgnæfandi. Fullkomin ró í Ró!

„Í Ró litnum má finna örlitla brúna og græna undirtóna. Alveg fullkominn í svefnherbergi. Dekkri útgáfan af Ylju“ segir Soffía Dögg

Soffía Dögg málaði svefnherbergið í sýningaríbúðinni í litnum RÓ en liturinn er töluvert dekkri en YLJA en samt með þessum hlýja tón. “Yndislegur litur sem er fullkominn litur í svefnherbergið,” segir Soffía Dögg.

ÓSK

ÓSK

Ljósari útgáfan af litnum Værð. Ljós muskaður, fjólubleikur tónn sem gefur frá sér kærleik og umhyggju. Það er angurværð yfir Ósk sem fer fallega í rými og mildar þau.

„Ósk er hinn mjúki, bleiki litur drauma minna!  Bleikur með fjólubláum jafnvel smá brúnum undirtón. Þetta er bleikur án þess að vera of bleikur. Ef þú vilt fara tóninum dekkra, þá er Værð dekkri útgáfan af Ósk,“ segir Soffía Dögg

Hér málaði Soffía Dögg barnaherbergið í litnum ÓSK en liturinn er bleikur með smá brúnum undirtón. “Þessi mjúki, mildi bleiki litur drauma minna,” segir Soffía Dögg

VÆRÐ

VÆRÐ

Dekkri útgáfan af litnum Ósk. Milli dökkur, fjólubleikur muskaður tónn sem gefur frá sér mikinn kærleik og umhyggju.

„Værð og Ósk eru systralitir. Værð er dekkri af þeim tveimur, notalegur, hlýr og svo endalaust fallegur. Værð er með fjólubláum og brúnum undirtón sem gerir hann svo aðlaðandi, “segir Soffía Dögg

Í öðru svefnherbergi málaði Soffía Dögg með litnum VÆRÐ en VÆRÐ og ÓSK eru systralitir. ” Værðin er dekkri af þeim tveimur, notalegur, hlýr og svo endalaust fallegur. Það er smá fjólublár undirtónn í honum” segir Soffía Dögg

MISTUR

MISTUR

Mistur er nokkuð dökkur, blágrár muskaður tónn. Glæsilegur í samspili ljóss og skugga til að búa til dýpt og dulúð. Róandi litur sem gefur frá sér stöðugleika, sjálfstraust og kyrrð. Óhreini muskaði tónninn gerir hann óráðinn líkt og þokuna í fjöllunum.

„Mistur er blágrár að lit og er hreinn unaður. Hann er eins og margir litir, mjög breytilegur eftir ljósskilyrðum. Stundum virkar hann alveg blár en á öðrum tímum dagsins alveg grár. Hann er þó alltaf hlýr og fallegur,“ segir Soffía Dögg

Fimmti liturinn sem hún notaði í íbúðinni er blágrái liturinn MISTUR. “Hreinn unaður. Eins og allir hinir litirnir er hann svo breytilegur eftir ljósskilyrðum – og það er það skemmtilega við þá. Stundum finnst mér hann alveg blár og á öðrum tímum alveg grár. En alltaf hlýr og fallegur,” segir Soffía Dögg

VÆNN

VÆNN

Liturinn Vænn er grænn eins og náttúran. Græni tónninn veitir heilun og ró í rýmið. Milli dökkur litur, einstaklega fallegur, mjúkur og þægilegur. ,,Allt er vænt sem vel er grænt,“ á vel við hér!

„Vænn dregur fram hlýju og er umvefjandi eins og góður sumardagur,“ segir Soffía Dögg

Soffía Dögg notaði litinn VÆNN þegar hún var að setja upp sýningarrými fyrir Rúmfatalagerinn. VÆNN er æðislegur grænn litur. “Það er auðvitað allt svo vænt sem vel er grænt, ekki satt! Einstaklega fallegur grænn litur, svo mjúkur og þægilegur,” segir Soffía Dögg

SPES

SPES

Liturinn Spes er milli dökkur litur sem minnir á mosann, náttúruna og fallegt lyngið. Muskutónninn gerir hann jarðtengdari, mjúkan og djúpan. Grænleiddi undirtónninn gefur honum ró og seiðandi fegurð.

„Spes er afar fallegur. Hann er brúngrár og það má merkja smá grænan undirtón í honum. Virkilega notalegur og hlýr litur,“ segir Soffía Dögg

Soffía Dögg tók í gegn hjónaherbergi fyrr á þessu ári en málaði hún með litnum SPES. “Hjónaherbergi eru þessi rými sem vilja svo oft sitja á hakanum … En þetta rými, sem á að vera kózý staður til þess að slappa af, vill oft verða að hálfgerðu geymslurými. Hér er hjónaherbergi sem fékk smá ást og umhyggju og varð að alveg dásamlegu afdrepi sem hreinlega tekur utan um mann. SPES var fullkominn litur þarna inn. Hann er ótrúlega fallegur, brúngrár, og kannski má merkja smá græna undirtóna í honum. Virkilega notalegur og svona hlýr litur,” segir Soffía Dögg

LEKKER

LEKKER

Lekker er mjög fallegur og mjúkur bleikur litur með brúnum blæ. Mildur og agalega lekker eins og nafnið gefur til kynna.

Í þessu barnaherbergi er LEKKER á veggjum. Liturinn er ótrúlega mjúkur bleikur litur sem hentar fullkomlega í barnaherbergi. Mynd Bára (@Bara_97).

Hægt er að sjá fleiri myndir af öllum þessum litum inn á síðu Soffíu Daggar www.skreytumhus.is. Síðan mælum við með að allir fylgist með nýju sjónvarpsþáttunum hennar en fyrsti þáttur verður sýndur 10. nóvember inn á www.visir.is eða á Stöð 2 Maraþon.

NÝIR LITIR SOFFÍU DAGGAR

YLJA

VÆNN

MISTUR

ÓSK

VÆRÐ

LEKKER

SPES

LITAKORT